Já eða nokkur ykkar, hmmm já eða aðallega Dóra greyið sem
sjaldan, ef einhverntimann, hefur stigið jafn harkalega á hökuna á
sér af undrun
Páskaplanið í ár var semsagt að koma ykkur
öllum á óvart og birtast óvænt á eyrinni góðu viku fyrir páska. En
þar sem ég er hræðilega lélegur lygari þá gat ég ekki haldið mér
saman og því var það einungis Dóri sem fékk kalda gusu í fésið
þegar hann kom að sækja "pakka" til Evu frá mér hihihihi 
Páskafríið var í alla staði frábært og óhætt að segja að það
hafi verið dekrað við mig út í eitt
Þar fremst í fararbroddi var
Dóri sem fór með mig í sund, brynjuísferðir, jarðböðin, jeppaferð
að ógleymdum fjölskylduhitting og vinahitting því ég hafði aldrei
verið kynnt fyrir einum eða neinum (eðlilega þar sem ég er búin að
halda mig í DK). Ekki má gleyma familíunni sem stóð sig með prýði í
að skjóta yfir mig skjólshúsi þegar þurfti og troða mat í okkur
turtildúfurnar
Segji ég því takk mamma, pabbi og mamma Begga - já
svo ég gleymi nú ekki tengdafjölskyldunni sem skyndilega fékk
aukaíbúa í kjallarann 
Ég náði nú ekki mikið að heimsækja vini og vandamenn sem er
ekkert nema eðlilegt - eða eins og Ester góðvinkona orðaði svo
réttilega "fyrstu mánuðurnir fara nú bara í kossa og kelerí" og
kenni ég því Dóra alfarið um hversu lítið ég lét sjá í skottið á
mér, sem er ekkert nema gott mál 
Eftir gott og langt frí var svo tími til kominn til að halda
aftur til DK að ljúka náminu - fyrsti dagur byrjaði með látum þar
sem ég varði sérgreinaprófið mitt og stóð mig bara ágætlega - fékk
9 og get unað sátt við mitt. Ég er nú á fullu í undirbúningi við
lokaverkefnið mitt og að pakka til að flytja HEIM í sumar
Ég
hreinlega get ekki beðið og vakna með bros á vör við tilhugsunina á
hverjum degi
Lífið í DK er reyndar voða ljúft þessa dagana,
sólin skín, fuglarnir syngja, 20 gráðu hiti og logn úti, er nú
hrædd um að ég missi af þessu flestu þar sem ég sit límd við
skrifborðið að hamra á apple greyið og því lítil brúnka sem sest á
mann þessa dagana 
Sökum fjölmargra óska þá setti ég inn myndir úr páskafríinu GÓÐA
og má finna afraksturinn inná http://myndir.ekkert.is/borgarbeib ég er nú ekki búin
að setja inn allt, en þetta kemur vonandi á dögunum - gjössovel
SIGGA!

Kúreki Norðursins

Svo sæt í sólinni í Mývatnssveit 
Bestu kveðjur frá strandarstemningunni í Herning - ykkar M með
pínu vott af heimþrá 